Beint á leiðarkerfi vefsins
Gula Línan

Flugeldar og tívolíbombur

flugeldar litilFlugeldasala byrjar formlega 28. desember og úrvalið er og verður stærra með hverju árinu. Þess vegna finnst okkur við hæfi að rita niður og safna saman stærri söluaðilum á höfuðborgarsvæðinu og birta hér á vefnum. Veðurspáin er hagstæð fyrir gamlárskvöld og því má búast við mikilli og góðri flugeldasýningu um 12 leytið þann 31.desember.

Best í bænum - Jólahlaðborð

perlan litilOkkur þykir það við hæfi að kynna úrslit úr kosningu um besta jólahlaðborðið nú þegar aðfangadagur fjarlægist í stað þess að nálgast. Vel á þriðja hundrað notendur Gulu línunnar tóku þátt í könnuninni að þessu sinni og er það með betra móti. Best í bænum á eftir að vaxa og dafna vel að okkar mati og með tíð og tíma verður þessi kosning ágætis leiðarvísir á vöru og þjónustu þar sem möguleiki gefst á að kynnast nýjungum og hrósa því sem það á skilið.

Kæri eiginmaður,

badrosir bigGetur þú í sannleika sagt að þú dekrir konuna þína oft? Þá er ég ekki að tala um að hún megi stjana við þig á meðan formúlan eða boltinn er og færa þér bjór og nasl. Eða fara í bíó með þér og börnunum. Sitja á flottum veitingastað yfir 3 rétta máltið með góðu víni og hlusta á þig tala við allan heiminn í gsm símanum. Ekki.!!...

Hinar jólagjafirnar

louandylittlebritainFlestir lenda í því svona rétt fyrir jól að trúa ekki þeirri staðreynd að enn ein jólin séu þeir langt á eftir áætlun með það að finna eitthvað til þess að pakka utan um handa ástvinum. Hérna eru nokkrar hugmyndir.

Skýrar línur frá Danmörku

Aseta dlineKnud Holscher er kannski nafn sem fæstir Íslendingar þekkja, en hann er samt sem áður einhver skærasta stjarna Norðurlandanna á sviði hönnunar. Holscher hefur starfað út um allan heim frá því á sjötta áratugnum og er margverðlaunaður arkítekt og innanhússhönnuður.

Jólapaté Pottagaldra

Pottagaldrar logoÍ mörg undanfarin ár hafa Pottagaldrar búið til ákaflega ljúfengt paté og gefið sem jólagjafir. Þiggjendum þykir nú þetta paté orðið ómissandi á jólaborðið. Uppskriftin er ákaflega einföld og þægileg í framkvæmd.

Tösku- og hanskabúðin

toskur og hanskar litilFlestir kannast við Tösku- og  hanskabúðina sem staðsett er við Skólavörðustíg 7. Verslunin sem hefur verið þar í rúm 40 ár er orðin eitt af kennileytum Skólavörðustígsins og löngum þekkt fyrir mikið úrval af gæðatöskum og hönskum af ýmsum gerðum.

Reykjavík - Akureyri - Blönduós - Ólafsvík

Nesfrakt litilNesfrakt hóf starfsemi sína árið 2000 með flutningum á milli Reykjavíkur og Snæfellsness en fljótlega bættist við Skagaströnd og loks Eyjafjarðarsvæðið. Á þessum tíma vantaði bætta þjónustu í fiskflutningum á milli þessara svæða en fyrr á þessu ári hóf Nesfrakt almenna flutninga, allt frá litlum jólapökkum upp í heilu sumarhúsin.

Forn-Ný Járngallerí

Fornny litilForn-Ný er verslun og járnsmiðja sem býður til sölu eigin framleiðsluvörur auk mikils úrvals af gjafa og skreytingavörum. Í versluninni að Iðnbúð 1 í Garðabæ er hægt að finna margt spennandi fyrir heimilið, forstofuna eða stofuna, eldhúsið eða svefnherbergið.

Hönnunarhús með persónulega þjónustu

Design litidDesign ehf er stofnað af nokkrum fyrrverandi starfsmönnum Hönnunar og Umbrots. Nýlega fluttu þeir í nýtt og glæsilegt húsnæði í Skipholti 15. Starfsemi Design er afar fjölbreytt og má segja að ekkert verk er of stórt né smátt. Starfsfólk Design leggur mikla áherslu á persónulega þjónustu sem er sniðin að þörfum hvers og eins.

Viltu versla ódýrar gæðavörur?

Servida litilServida var stofnað árið 2002 og hefur frá upphafi boðið umhverfisvæna framleiðslu varðandi hreinlætisvörur og pappír. Nýverið flutti fyrirtækið í nýtt húsnæði og hefur opnað glæsilega og aðgengilega verslun að Hvaleyrarbraut 4 – 6, þar sem bæði einstaklingar og fyrirtæki geta verslað gæðavöru á lægra verði en hingað til hefur verið í boði.

Mjúk og merkileg í nær 50 ár

Verið í Glæsibæ hefur framleitt sængurfatnað fyrir viðskiptavini frá árinu 1960. Upphaflega voru konur við þann starfa að bródera vöggusett fyrir nýfæddu börnin. Þetta er enn þann dag í dag hluti af því sem Verið býður upp á.



Netspjall