Jæja, það er komið veislustand, erum við að fara í tvær eða þrjár veislur í dag? Var krossinn handa Jónu og 3þúsundkallinn handa Benna? Erum við svo að ferma á næsta ári ... ó minn eini!

Þegar ég var fermdur fengu allir Kodak imbamatik eða enn þá flottara, þarna munið þið, Kodakið með handfanginu og flasskubbunum ofan á. Ég bað hins vegar bara um peninga og keypti mér Canon AE-1. Svo fékk ég líka eina orðabók.
Hvað sem hverjum unglingi finnst þá veitir okkur ekki af að „ala þá örlítið upp“ er það ekki? X-box og Play-station eru ekki beinlínis það sem Kristur hafði í huga held ég. „Ride or die“ og „Evil... eitthvað“ er ekki alveg í anda dagsins, er það?
En vilji unglingurinn fá seðla, gefum honum þá seðla og treystum á hann. Það er ekki okkar að rengja ætlanir hans. Annars eru sígildar gjafir krossar, orðabækur og annað kristilegt og námstengt, svona í tilefni dagsins. Unglingurinn er nú einu sinni þennan dag tekinn í „fullorðinna manna tölu“ eða allt að því.
Erum við svo næst?
Flestir veislusalir eru pantaðir rétt eftir áramót þegar úthlutun á fermingardögum kemur og á veislutímanum sjálfum á vorin þegar þeir sem eru að fara að ferma á næsta ári uppgötva hversu mikið mál var fyrir veisluhaldarann að ná í sal. Sannleikurinn er nefninlega sá að margir betri salir eru bókaðir með allt að 3ja-4ra ára fyrirvara og langflestir með 10-18 mánaða fyrirvara. Því er gott að panta núna!
Erum við of sein?
Nei, enginn skal þó örvænta því eins og segir í pistlinum „Fermingar – fyrsti þáttur“ hér á þessum síðum þá er ekkert að því að halda góða fermingarveislu heima. Þetta hvet ég alla til að hafa í huga og minnast þess að fermingin sjálf er staðfesting á skírninni, staðfesting á því að við erum þátttakendur í þessu samfélagi, því samfélagi sem við sköpum saman og eigum saman. Látum því ekki ósýnilegan þrýsting og lífsgæðakapphlaup ata okkur út í vitleysu. Njótum frekar þess að eiga góða stund heima með okkar nánustu.
Þetta segi ég sem veitingamaður og veisluhaldari. Ég leigi út sali og býð ykkur velkomin, hvernig sem veislan er útfærð. Best er hins vegar að hafa hana á persónulegum nótum, þá tek ég hatt min ofan fyrir ykkur og býð ykkur auk þess að hafa samband (án endurgjalds) og fá alla ráðgjöf um hvernig hægt er að halda veislu heima á auðveldan hátt.
Svo býð ég líka veitingar.
Þessi fróðleiksmoli er í boði Cocktail.is veisluþjónustu
Frekari upplýsingar : http://www.cocktail.is
og einnig á : http://www.salur.is
