Beint á leiðarkerfi vefsins
Gula Línan

Bílasprautun og réttingar

Undanfarna daga hefur veðrið á litla landinu okkar leikið marga grátt, ekki síst bíleigendur, en á höfuðborgarsvæðinu hefur verið óvenju mikið um smáárekstra samfara snjóþyngslum.  Þessum óhöppum fylgja sem betur fer sjaldan slys á fólki en algengara er að huga þurfi að bílunum sem taka skellinn.

Bra2

Bílasprautun og réttingar Auðuns er eitt fullkomnasta réttingaverkstæði landsins.  Það er vottað af Bílgreinasambandinu og tryggingafélögum en það tryggir bestu þjónustu og viðgerð sem völ er á enda eru gerðar miklar kröfur til verkstæða sem hljóta vottun, hvort sem um er að ræða móttöku bíla, viðgerðina sjálfa eða afhendingu.
Verkstæðið vinnur eftir CABAS tjónamatskerfi sem er beintengt gagnagrunni tryggingafélaganna og sér um tjónaskoðun fyrir öll tryggingafélög.  Einnig er verkstæðið með sérþjónustu fyrir Toyota bíla en tekur að sjálfsögðu við öllum tegundum bíla og jeppa til viðgerðar.

Allar nánari upplýsingar má fá á heimasíðunni www.bilasprautun.is og einnig er hægt að panta tíma á heimasíðunni.

_____
Bílasprautun og réttingar Auðuns
Nýbýlavegi 10
200 Kópavogur
s. 554 2510



Netspjall