Beint á leiðarkerfi vefsins
Gula Línan

Hvernig á að smíða sólpall?

Sólpallar í görðum og sumarbústaðarlóðum bjóða upp á ýmsa skemmtilega möguleika. Hægt er að hafa þar garðhúsgögn, grill, blómaker og sólstóla svo nokkuð sé nefnt og geta þeir orðið fyrirtaks útivistarsvæði fyrir alla fjölskylduna. Þegar byggja á sólpall þarf að huga að ýmsu, meðal annars hvernig á að nota hann og hvar hann á að vera staðsettur. Smíðin þarf þó ekki að vera flókið eða óyfirstíganlegt verkefni, jafnvel þó að þú hafir ekki mikla reynslu af smíðavinnu. Mestu máli skiptir að vera vel undirbúinn, með góðar leiðbeiningar og rétt verkfæri við hönd.

 husasmidjan pallaradgjafi

Staðurinn undirbúinn

1. Það þarf að byrja á því fjarlægja allt gras sem kann að vera til staðar þar sem pallurinn á að rísa og slétta vel allt undirlag. Byrjað er á því að reka niður hæla þar sem horn pallsins á að vera og strengja línu á milli þeirra til að ákvarða svæðið. Þegar búið er að slétta undirlagið þarf að ganga úr skugga um að jarðvegurinn sé láréttur þannig að pallurinn standi á jafnsléttu.

2. Þegar búið er að undirbúa svæðið er lagður jarðvegsdúkur yfir það til þess að hindra að illgresi nái að skjóta sér upp í gegn um pallinn. Ofan á dúkinn skal síðan setja 4-5 cm. lag af sandi eða möl.

3. Ef fyrirsjáanlegt er að mikill raki sé á svæðinu gæti þurft að lyfta pallinum örlítið frá jörðu. Það er hægt að gera með því að grafa holur með 1,2 m. millibili allan hringinn sem eru 15×15 cm. Því næst þarf að setja steypu eða forsteyptar undirstöður í holurnar og gæta þess að allar undirstöður séu í sömu hæð til þess að pallurinn standi á jafnsléttu eins og sagt var áður.

Pallurinn settur saman

Jafnvel þótt smíða eigi lítinn pall er hann býsna þungur og því nauðsynlegt að smíða hann á staðnum. Það þarf þó alls ekki að vera mikið mál.

1. Byrjað er á því að leggja ytri ramma pallsins á sinn stað, skrúfa úthringinn saman á hornunum með hæfilega löngum skrúfum og rétta hann af með því að finna 90° horn. Því næst eru bitarnir í innri grindinni sagaðir í rétta lengd og settir á sinn stað. Ef ætlunin er að klæða pallaefnið þvert á grindina nægir að hafa 55 cm. á milli bita, en ef pallaefnið á að vera á ská þarf að hafa 45 cm. á milli bita, miðað við pallaefni af stærðinni 28×95 mm.

2. Þegar grindin er tilbúin má byrja að klæða pallinn. Hægt er að negla klæðninguna niður eða nota þar til gerðar pallafestingar, en þá er mælt með að skrúfa hana niður með ryðfríum skrúfum til þess að ná betri festu. Auk þess verður viðhald auðveldara og viðbætur seinna meir.

3. Klæðningin er sjaldnast nægilega löng til að ná yfir allan pallinn og þarf þá að setja tvö eða fleiri borð saman. Borðið er sagað í þá lengd að það nái nákvæmlega inn á mitt þverbandið í grindinni þar sem samsetning-in kemur, sandpappír rennt létt yfir endann og síðan er það skrúfað niður.

Næsta borð er síðan fellt að því og svo koll af kolli. Samskeytum af þessu tagi er ávallt víxlað þannig að næsta samsetning komi á öðrum stað, en sú þarnæsta í sömu línu og sú fyrsta, en þannig myndast fallegt munstur.

Afstaða sólar skiptir máli

Þegar pallurinn hefur verið smíðaður vilja flestir setja upp skjólvegg í kring til þess að skýla sér fyrir mesta vindinum. Þá skiptir þó máli að planta gróðri á milli skjólveggsins og þess svæðis sem nota á til útivistarinnar þannig að þú lendir ekki í því að þurfa að sitja úti í skugganum. Velja þarf því gróðurinn af kostgæfni þannig að hann veiti í senn skjól en verði ekki of hár og fari að skyggja á pallinn. Þegar vinnan er að baki er síðan lítið annað að gera en að njóta afrakstursins, kveikja í grillinu og slappa af í góða veðrinu.



Netspjall